Ég skil ekki af hverju Einstein er frægari en þú, Rutherford. Þú bjóst til líkan af atóminu sem liggur til grundvallar nútímaeðlisfræði og hefur víðtækari hagnýtingar en þyngdarlögmál Einsteins — ef það er rétt yfirhöfuð. Ég get auðvitað ekki sagt annað í nærveru Eddington. En munurinn á kenningum Einsteins og Newtons er svo smávægilegur að ég skil ekki af hverju allir gera svona mikið úr þessu.
Það var Eddington sem skaut Einstein upp á stjörnuhimininn. Stríðinu var lokið og týnda kynslóðin leitaði að nýju leiðarljósi. Almenningur hafði alltaf hrifist af stjarnvísindum, og þegar kenningar hjá þýskum vísindamanni voru staðfestar af breskum stjarneðlisfræðingum, beint eftir stríð, var það kraftmikið tákn um að vísindi væru hafin yfir átök og pólitík. Eftir það var leikur einn fyrir bandaríska fjölmiðla að gera Einstein að stórstjörnu.